Handóður

Velkomin á vikingur.info, heimili Handóðs. Markmiðið er að byggja hér upp með tíð og tíma öfluga sjálfstæða síðu fyrir stuðningsmenn Víkings í meistaraflokki handbolta.

Hér verða engir hurðarásar reistir um öxl, síðan á að byggjast upp hægt og rólega, en hins vegar er mikilvægasti hluti hennar, a.m.k. fyrst um sinn kominn í starfhæft form. Loksins er kominn spjallvefur fyrir handboltann í Víkingi.

Bjarki Sigurðsson

Bjarki spilaði allan leikinn í gær og lauk þar með að öllum líkindum sínum handknattleiksferli. Ekki á þann hátt sem hann eða við hefðum viljað en eftir stendur minningin um stórkostlegan leikmann.

4.02.2005 kl: 10:06

Vantaði herslumuninn

Tveggja marka sigur var ekki nóg. Leikmenn lögðu sig alla fram, en náðu ekki þeim fimm mörkum sem þurfti. Til þess fóru of mörg skot í stangir, markmann og yfir. Annars er lítið hægt að segja um leikinn, FH breytti stöðunni úr 6-4 í 7-10 í fyrri hálfleik og eftir það var alltaf á brattann að sækja þó að lokamarkmiðið hyrfi ekki úr sjónmáli fyrr en undir blálokin.
Næsta ár verður spennandi sem þetta, vonandi að hópurinn haldist og með einni til tveim viðbótum getur allt gerst.

kl: 09:52

Hörkuleikur í Eyjum

Það var boðið upp á hörkuleik í Vestmannaeyjum í gærkvöld. Víkingsstúlkur mættu gríðarlega einbeittar til leiks og var það ljóst frá fyrstu mínútu að þær ætluðu sér sigur. Leikurinn var jafn á tölum fyrstu 15 mínúturnar en þá settu Víkingar í fimmta gír og röðuðu inn mörkum úr hraðarupphlaupum. Þar ber helst að nefna leik Margrétar hornamanns en hún skoraði 7 mörk í fyrri hálfleik. Í hálfleik var staðan 14-17 fyrir Víking og var ljóst að Eyjastúlkur ætluðu ekki að gefa neitt eftir og komu þær tvíefldar til leiks eftir hálfleik. Fyrstu 10 mínúturnar í seinni hálfleik var Víkingur í 6 mínútur einum færri og náðu þá Eyjastúlkur að minnka muninn. Leikurinn var jafn en þegar um 10 mínútur voru eftir þá náðu heimamenn 2 marka forystu og héldu henni út leikinn og unnu því leikinn. Víkingsstúlkur áttu að klára þennan leik en því miður náðist það ekki að þessu sinni, en það er ekki spurning að leikurinn á laugardaginn verður hörkuspennandi og það er alveg á hreinu að stelpurnar eru ekki tilbúnar til að fara í sumarfrí þá.
Allt Víkingsliðið stóð sig vel en það verður að minnast á frammistöðu Margrétar og Ástu sem skoruðu samtals 17 mörk af 27 mörkum Víkings. Bestar í liði ÍBV voru Alla Gokorian með 12 mörk og Guðbjörg Guðmannsdóttir kom sterk inn í seinni hálfleik.
Allir að mæta í Víkina á laugardaginn kl. 13:00 (ATH breyttur leiktími)

4.01.2005 kl: 10:33

Á brattann að sækja

Þetta byrjaði allt svo vel.
Reynir varði, vörnin var sterk, sóknin setti hann inn og Víkingar komust í fimm marka forskot í fyrri hálfleiknum og héldu því um tíma. En undir lokin klóruðu FH í bakkann og í hálfleik var þriggja marka munur.
En FH-ingar komu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik, markvörður þeirra fór að verja og áður en varði var staðan jöfn. Síðan var FH lengst af með þetta tveggja marka mun þar til undir lokin þegar Brjánn var rekinn útaf og þrjár mínútur eftir. FH komst í þriggja marka mun og Víkingar áttu ótímabært skot framhjá. Sókn rann síðan út í sandinn á báða bóga og FH ingar náðu boltanum á síðustu sekúndunum, komu honum fram og settu 29. markið. 29-25 og þar sem markatalan telur í samanlögðu eru þetta gríðarleg vonbrigði. Það munar miklu hvort farið er með fjögur mörk á bakinu í seinni leikinn eða tvö og það var eins og leikmenn gerðu sér ekki alveg grein fyrir að þetta voru ekki leikslok heldur bara hálfleikur í tveggja tíma leik. Enda er það mjög sjaldgæf staða.
En miðað við leikinn í dag er það alls ekki fjarlægur möguleiki að vinna seinni leikinn nógu stórt, nú þurfa Víkingar að fjölmenna á föstudaginn og styðja okkar menn til sigurs!

3.30.2005 kl: 21:01

Deildin búin

Er ekki kominn tími á skrif hérna á síðunni. Vonandi er einhver enn að skoða hana og sá sem þetta les fær loforð um umfjöllun um næstu leiki hér á síðunni.
Deildin kláraðist fyrir páska og var hörkubarátta í gangi í DHL-deild karla. Strákarnir spiluðu úrslitaleik á móti Þór Akureyri um hvaða lið kæmist í umspil um sæti í 8-liða úrslitum. Þórsarar leiddu í hálfleik og virtust líklegri til að klára leikinn en með miklum vilja tóku Víkingar af skarið og gerðu 6 mörk í röð í síðari hálfleik. Leikurinn endaði 30-33 fyrir Víking og tryggðu strákarnir sér 7. sæti deildarinnar. Fyrstu 6 liðin í úrvalsdeildinni komast beint í úrslitakeppni en liðið í 7. sæti leikur um laust sæti á móti FH sem endaði í öðru sæti 1. deildar. Liðið sem sigraði fyrstu deildina (Fram) kemst beint í úrslitakeppnina.
Leikið er í Kaplakrika og í Víkinni og kemst það lið áfram sem annaðhvort sigrar báða leikina eða er með betri markatölu. Þetta verður því hörkuspennandi rimma sem hefst miðvikudaginn 30. mars. Fyrst er leikið í Kaplakrika kl. 19:15 og svo er seinni leikurinn í Víkinni föstudaginn 1. apríl kl. 19:15 (þetta er ekki aprílgabb).

Stelpurnar okkar spiluðu einnig sinn síðasta leik í deildinni fyrir páska. Margt hefur gerst hjá stelpunum og ber þar hæst að nefna þjálfaraskipti núna í febrúar. Natasa Damljanovic tók við þjálfuninni og hafa stelpurnar æft mjög stíft síðan. Til aðstoðar Natösu á bekknum eru þær stöllur Guðmunda og Eva Halldórsdóttir en þær þekkja liðið ef ekki betur en sinn eigin lófa. Liðið hefur sigrað einn leik á móti Val en tapað tveim (á móti FH og Stjörnunni) síðan Natasa tók við, en á margt inni og mun vonandi blómstra í úrslitakeppninni. Liðið endaði í 7. sæti deildarinnar líkt og strákanir og munu taka á móti Eyjastúlkum í 8-liða úrslitum. Eyjastúlkur hafa lent í smá basli í vetur og hafa sent heim einn af sínum bestu leikmönnum Zofiu Pastor. Þær enduðu í öðru sæti deildarinnar eftir að hafa tapað úrslitaleik á móti Haukum í lok síðustu umferðar.
Leikirnir fara fram fimmtudaginn 31. mars kl. 19:15 í Vestmannaeyjum og sá seinni laugardaginn 2. apríl kl. 16:15 í Víkinni. Ef til þriðja leiks kemur þá fer hann fram miðvikudaginn 6. apríl í Vestmannaeyjum.

Það verður því mikil handboltaveisla hjá okkur Víkingum næstu fjóra daga og vonandi geta sem flestir séð sér fært um að mæta og styðja sína menn.
Ekki vera svo feimin við að nota spjallið.
Áfram Víkingur

kl: 16:12

Bikarleikur í kvöld

Það er stórleikur í kvöld í Víkinni. Víkingur - Stjarnan í 8 liða úrslitum SS bikars kvenna. Það er frítt inn á leikinn í kvöld og því viljum við hvetja alla til að koma og styðja stelpurnar okkar. Áfram Víkingur

12.02.2004 kl: 11:49

Víkingur - ÍR færður

Leikurinn við ÍR hefur verið færður fram á laugardag kl. 16:15. Ætla ekkert að segja útaf hverju, enda ætla hvort sem er allir Víkingar að mæta og styðja okkar menn! Fínn endir á fyrsta alvöru jólalaugardagsstressinnkaupadeginum, mæta í Víkina og öskra aðeins úr sér stressið. Strákarnir ætla að sýna og sanna að Eyjaleikurinn var bara slys.

11.30.2004 kl: 14:19

Víkingur - Fram síðastliðinn laugardag

Konurnar unnu Fram 29-22, reportið er komið á vikingsgirls

11.16.2004 kl: 08:36

Bréf frá Gunna Magg

Það er stórleikur við Val í kvöld kl. 19.15 í Víkinni. Því miður hefur mætingin á leiki hjá strákunum í vetur verið afspyrnu slök þrátt fyrir gott gengi liðsins, því eins og allir vita þá erum við á toppnum í okkar riðli fyrir leiki kvöldsins. Nú ætlum við að smala öllum Víkingum á völlinn í kvöld og búa til alvöru stemmingu. Ég skora á alla að koma á völlinn í kvöld og styðja ykkar félag til sigurs!!! því við ætlum okkur að sjálfsögðu að vera áfram á toppnum.
Allir þeir sem mæta í Berserkjabúning fá frítt á leikinn.
Víkings kveðja
Gunni Magg
p.s. einhver hvíslaði því að mér að í hálfleik yrði seldur einhver drykkur sem Berserkir kannast vel við.

11.12.2004 kl: 11:23

Víkingur - Valur

Nú er komið að því að endurtaka leikinn frá í Valsheimilinu og skella grönnunum. Allir fyrrum meistaraflokksleikmenn karla eru boðnir á leikinn. Á vikingur.is eru viðtöl við Gunna Magg og Bjarka og spjallið á vikingur.net bendir til góðrar mætingar.
Það verður því gargandi stemming og læti. Það held ég nú.

kl: 08:21

Leikur í kvöld

Já það er leikur hjá stelpunum okkar í kvöld, þær fara á Ásvelli og heimsækja taplausu Haukastelpurnar. En vonandi munu þær taka eins vel á þeim og stjörnustelpunum síðast og vera fyrsta liðið til að vinna Haukana í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18:00 á Ásvöllum Hafnarfirði.
Áfram Víkingur

11.10.2004 kl: 15:07

Víkingur - Stjarnan 25-18

Frábær leikur hjá stelpunum okkar, eftir frammistöðuna í síðustu leikjum var á hreinu að eitthvað þurfti að gera og hvað sem þær gerðu...þá tókst það. Til hamingju.
Inni á vikingsgirls.blogspot.com er búið að skrifa þvílíkan pistil um leikinn og í staðin fyrir að endurtaka leikinn hér, þá vil ég frekar benda ykkur á að lesa pistilinn þar og þá fáið þið svo sannarlega innsýn í leikinn.
Kíkið því á vikingsgirls.blogspot.com

11.01.2004 kl: 09:35

Þörf predikun og sitthvað fleira

Þeim sem ekki hafa þegar séð það er bent á að lesa pistil Reynis Reynissonar á vikingur.is.
Annars töpuðu konurnar fyrir Gróttukr í gær og rífa sig vonandi upp fyrir leikinn á morgun gegn Stjörnunni í Víkinni. Vonandi kemur pistill um leikinn í gær hér á eftir.
Að lokum er nauðsynlegt að benda á að það var alveg rosaleg gaman á Víkingsballinu. Þeir sem ekki mættu misstu af miklu og ættu að mæta á næsta ári.

10.29.2004 kl: 13:35

Leikur í kvöld, ball á morgun

Karlarnir spila sinn síðasta leik í fyrri umferð Suðurdeildar í kvöld og ríður á að taka heim tvö stig úr Gårdenbyen og tryggja sig í sessi í 2.sætinu. Leikurinn er klukkan 19:15 eins og alltaf.
Á morgun er svo hið óstjórnlega skemmtilega Víkingsball. Papar munu trylla lýðinn. Miðasala er í Hard Rock Café í dag og Víkinni á morgun. FótboltaBerserkir eru með uppskeruhátíð á undan (kl. 20:00) og svo hittumst við öll á ballinu.
Velunnurum þessarar síðu er bent á að ekkert er því til fyrirstöðu að þakka fyrir sig með að bjóða aðalumsjónarmanninum á barinn.

10.22.2004 kl: 07:45

Leikir í dag og á morgun!

Karlarnir leika við Selfoss í Víkinni kl 19:15 í dag og konurnar við FH á morgun kl 16:15 í Víkinni. Athugið breyttan tíma og stað á FH leiknum.
Við væntum þess auðvitað að Víkingar fjölmenni í Víkina!

10.15.2004 kl: 06:07

[Pistill] Víkingur - Valur 22-26

Það var erfið fæðing í Víkinni í gær. Leikurinn ætlaði aldrei að byrja. Leikklukkan var eitthvað að stríða Víkingsmönnum og vildi ekki fara í gang. Leikmenn beggja liða þurftu að halda á sér hita á meðan það var verið að finna út hvað var að klukkunni. Á meðan fylltist húsið af áhorfendum en það verra var að meirihlutinn voru Valsáhorfendur, ekki nógu gott. Eftir 20-30 mínútur ákváðu dómarar að byrja leikinn og var fyrri hálfleikur spilaður án leikklukku. Það var frekar furðulegt.
En hvað um það. Víkingsstelpur byrjuðu leikinn betur og komust í 2-0. En þá kom góður leikkafli hjá Valsstúlkum og þær komust í stöðuna 3-7. Eftir það má segja að leikurinn hafi verið eins, þ.e. víkingsstelpur náðu að minnka muninn niður í tvö mörk 5-7 en þá gáfu valsstelpur í og juku forskotið og staðan varð 7-11, þetta hoppaði svona á 3-4 mörkum. Víkingur skoraði 3 mörk í röð en svo komu valsstelpur og skoruðu næstu 3 mörkin. Í hálfleik var staðan 13-15. Í byrjun seinnihálfleiks stungu gestirnir af og náðu stöðunni 14:20 og má segja að eftir það áttu víkingstúlkur ekki séns. Hvorki vörnin né sóknarleikurinn var að smella og þurfa stelpurnar okkar að bæta sig fyrir næsta leik sem er á móti FH næstu helgi. Markaskorun var þessi:
Víkingur:
Natasa 10/1, Ásta 4, Sigrún 3, Andrea 2/1, Helga Birna 1, Margrét 1, Helga JR 1
Erna varði 16 bolta, þar af 1 víti
Valur:
Díana 6, Ágústa Edda 6, Arna 4, Hafrún 3, Silla 3, Anna 2, Árný 1, Soffía 1
Berglind varði 15 bolta, þar af 1 víti.
Já, stelpurnar okkar þurfa svo sannarlega að taka sig saman í andlitinu og fara að sigra leiki. Ef við ætlum að vera í toppbaráttunni þurfum við að ná í stig gegn liðum eins og Val. En nú er það að einbeita sér að leiknum á móti FH næstu helgi. Þar verður barist um líf og dauða.
En látum ekki Valsmenn taka okkur í nefið á áhorfendabekkjunum. Þeir öskruðu áfram valur allan tíman og studdu sitt lið....þetta er okkar heimavöllur og við verðum að styðja stelpurnar okkar til sigurs. Áfram Víkingur

10.13.2004 kl: 16:35

Víkingur - Valur í kvöld kl. 19:15

Þá er komið að stórleik umferðarinnar hjá stelpunum. Víkingsstelpurnar taka á móti Valsstúlkum og eiga þær harma að hefna frá úrslitakeppninni í vor. Þetta verður hörkuleikur og byrjar hann kl. 19:15 í Víkinni. Við viljum hvetja alla til að mæta og styðja stelpurnar okkar. Sjáumst í Víkinni

10.12.2004 kl: 10:37

Tap í Breiðholtinu.

Ég hefði átt að lofa meiru á spjallinu, komst svo ekki á leikinn. Lítur út fyrir að okkar menn hafi staðið í þeim og tapað naumt. Við tökum þá í Víkinni.

10.09.2004 kl: 13:46

Leikir karla

Mið. 9.feb.HK - Víkingur 31-28
Sun. 13.feb. Víkingur - KA 31-25
Sun. 20.feb. Haukar - Víkingur 32-26
Sun. 27.feb. Víkingur - Þór Ak. 33-28
Sun. 6.mar. Víkingur - HK 25-35
Mið. 9.mar KA - Víkingur 26-19
Lau. 12.mar. Víkingur - Haukar 29-33
Lau. 19.mar. Þór Ak. - Víkingur 30-33
Mið. 30 mar. FH - Víkingur 29-25

Fös. 1. apr. kl. 19:15 Víkingur - FH

Leikir kvenna

21.sep. Víkingur - Haukar 25-31
25.sep. Fram - Víkingur 20-26
2.okt. ÍBV - Víkingur 32-32
Þri. 12.okt. Víkingur - Valur 22-26
Lau. 16.okt. Víkingur - FH 22-26
Fim. 28.okt. Víkingur - Grótta KR 20-24
Lau. 30.okt. Víkingur - Stjarnan 25-18
Mið. 10.nóv. Haukar - Víkingur 33-24
Lau. 13.nóv. Víkingur - Fram 29-22
Sun. 5.des.Grótta KR - Víkingur 25-24
Sun. 12.des. Víkingur - ÍBV 29-36
Þri. 11.jan. Valur - Víkingur 28-21
Sun. 16.jan. Víkingur - FH 27-29
Lau. 22.jan. Stjarnan - Víkingur 22-21
Lau. 5.feb. Fram - Víkingur 24-23
Lau. 12.feb. Víkingur - Grótta KR 22-28
Þri. 15.feb. ÍBV - Víkingur 26-18
Lau. 22.feb. Víkingur - Haukar 21-40
Mið. 9.mar. Víkingur - Valur 26-18
Þri. 12.mar. Víkingur - Stjarnan 22-30
Lau. 19.mar. FH - Víkingur 29-26

Fim. 31 mar. kl. 19:15 ÍBV - Víkingur

Lau. 2. apr. kl. 16:15 Víkingur - ÍBV

Um síðuna

Umsjónarmaður

Powered by Blogger

Subscribe with Bloglines